sunnudagur, 25. janúar 2015

Styttingin

Eins og oft áður er alltof langt síðan ég birti færslu. Í þetta skiptið langar mig að deila með ykkur yfirliti yfir það sem fór fram á ráðstefnu minni varðandi styttingu framhaldsskólanna sem haldin var í Norðurljósasal Hörpu þann 19. nóvember s.l.

Ferlið gekk allt saman vonum framar og kom skemmtilega á óvart.

Eftir að hafa fengið það einstaka tækifæri að fara út til Indiana í Bandaríkjunum á vegum Bandaríska sendiráðsins, fyrir hönd Íslands þá opnuðust mér margar dyr. Ég kynntist yndislegum krökkum frá löndum Evrópu og frá hinum ýmsu fylkjum Bandaríkjanna. Þessir einstaklingar kenndu mér svo margt á aðeins mánuði en ekki má gleyma leiðbeinendunum okkar og prófessorum. Það helsta sem ég er þakklát fyrir á liðnu ári er vináttan sem ég hef við þessa krakka og hversu vel ég kynntist sjálfri mér.

Þegar heim var komið þá tók við annað árið mitt í Verzlunarskólanum. Ég hafði þó margt á prjónunum annað en einungis skólann og áhugamálin og henti ég mér út í undirbúning fyrir ráðstefnu í Hörpu. Ráðstefnan gekk vonum framar og er það ljóst að ungmenni þjóðarinnar hafa svo sannarlega eitthvað til síns máls að færa.

Ég fékk frábæra ræðumenn í lið með mér til þess að ræða málefnið. Björg Magnúsdóttir, fréttakona og rithöfundur tók að sér fundarstjórn og stóð sig með stakri príði.

Hér að neðan má lesa yfirlit frá ráðstefnunni.






Opnunarávarp

Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, flutti opnunarávarp ráðstefnunnar í stað Illuga Gunnarssonar, menntamálaráðherra sem var forfallaðist vegna erinda sinna erlendis. Unnur fjallaði um styttinguna í stærra samhengi þar sem helstu kostir og gallar voru dregnir fram en það sem stóð einna helst upp úr var hagur einstaklingsins, þróun menntakerfisins á Íslandi og vellíðan nemenda sem og árangur í námi.


Ingi Ólafsson og Verzlunarskóli Íslands

Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands fjallaði um áhrif styttingarinnar á menntaskólann í heild sinni og tók þá aðallega dæmi um það hvaða áhrif hún mun hafa á Verzlunarskólann. Ingi vakti athygli á því hversu mikilvægt það er að læra af reynslunni sem og að vera opinn fyrir nýjungum. Hann nefndi það að umræðan um styttinguna er ekki ný á nálinni heldur gengur þessi hugmynd langt aftur í tímann. Ingi talaði einnig um þroska einstaklingsins, stöðu hans sem þátttakanda í lýðræðisþjóðfélagi og atvinnulífi framtíðarinnar, ásamt því að tala um lög og relgur sem gilda fyrir menntakerfi landsins.

Það vakti mikla kæti Verzlinga í salnum þegar Ingi hóf að segja frá fyrirhuguðu þriggja ára kerfi sem mun taka gildi haustið 2015 þegar nemendur, fæddir árið 1999 innritast í skólann. Skólinn mun taka ýmsum breytingum og sagði hann að það muni vissulega taka tíma fyrir skólann að þróast með þetta nýja kerfi við lýði. Skólinn mun vera þriggja anna einingakerfi þar sem kjarna námsins verður skipt í þrennt. Einnig mun ný braut bætast við en það er Lista- og nýsköpunarbraut sem mun eflaust vekja mikla lukku og bjóða upp á enn meiri fljölbreytni í námsleiðum skólans. Nýtt einingakerfi verður innleitt þar sem nemendur þurfa að útskrifast með 207 einingar loknar í stað 140+ eininga eins og staðan er í dag. Náminu verður að auki skipt niður í þrennt en það er: Sameiginlegur kjarni, óháður braut (97 einingar), Brautarkjarni (60 einingar) og að lokum Val-pakkann eins og hann er kallaður (50 einingar).

Ingi vakti athygli á því að þróun sé einn af lykilþáttunum í átt að auknum árangri og að breytingar séu lang oftast erfiðari en má halda. Ingi sagðist að lokum líta jákvæðum augum á styttinguna og að hann sjái þetta sem tækifæri til þess að leyfa honum að verða betri í stað þess að standa í stað.



Sigrún Dís Hauksdóttir, félagslíf Verzlunarskólans

Næsti ræðumaður upp í pontu var það Sigrún Dís Hauksdóttir, forseti Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands. Sigrún fjallaði aðallega um félagslegu áhrif styttingarinnar, bæði kosti og galla. Sigrún benti á nokkrar breytingar sem munu eiga sér stað innan nemendafélagsins á komandi skólaári og hvernig starfsfólk skólans, ásamt nemendum, hyggjast takast á við þær. Einnig benti hún afar réttilega á það hve virkilega lærdómsríkt það er að sinna félagsstörfum og að taka þátt í nemendafélögum nú til dags. Hún sagði rödd nemenda þurfa að fá að heyrast og að yfirvöld ættu að veita málefnum ungmenna meiri athygli.




Ari Kristinn Jónsson, áhrifin á háskóla landsins

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR var þriðji ræðumaður kvöldsins. Ari fjallaði aðallega um áhrifin á háskóla landsins og þá aðallega Háskólann í Reykjavík. Hann byrjaði ræðu sína á hagfræðilegum nótum þar sem hann fjallaði um mikilvægi tækifæra og þróunnar svo að þjóðin geti alið af sér vel menntað fólk sem gæti skapað verðmæti á alþjóðlegum vettvangi í framtíðinni. Ari fjallaði um hlutverk skólakerfis, hvað mætti betur fara og þá mikilvægu staðreynd, að skólakerfið, eins og allt annað verður að fá að þróast. Einnig talaði hann um kosti og galla, áhættur, heildarhagsmuni, þekkingu, þjálfun og verklag og síðast en ekki síst þroska einstaklingsins.

Ari sagðist sjá marga kosti við styttinguna en henni fylgdu þó áhættur. Það helsta sem vakti athygli eftir flutning Ara var kostur þess að nemendur færast nær nágrannaþjóðum sínum þegar kemur að því hvenær þeir útskrifist. Þá komast einstaklingar fyrr út á atvinnumarkaðinn og geta ýtt undir hagvöxt í landinu. Þrátt fyrir það þá má menntunin sem fer fram innan framhaldsskólanna ekki skerðast því þurfa markmiðin að haldast skýr. Mikilvægt er að nemendur komi eins vel undirbúnir inn í háskólana og hægt er.



Hafdís Ingvarsdóttir, hlutverk nemenda og ólík viðmið

Hafdís Ingvarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ sagði framhaldsskólana eins ólíka og þeir eru margir. Allir með sín markmið, viðmið, kröfur og þar fram eftir götunum. Hafdís lagði mikla áherslu á að hlutverk nemenda í námi ættu að skipa stærri sess, að nemendur ættu að vera fremur þátttakendur en þiggjendur. Draga ætti úr þeim tíma sem varið er í próf og fjölga ætti heimaverkefnum, ritgerðum og fleiru sem er nemendum nógu krefjandi og afkastamikið. Hafdís talaði einnig um sérhæfingu skólanna og að hún hafi verið að aukast undanfarin ár. Þrepaskiptning framhaldsskólanna var kynnt þar sem nemendur lærðu meira eftir áhuga sínum og hæfni heldur en að það sama gangi yfir allan hópinn og allir taki alla sömu áfangana. Að lokum hvatti hún til aukinna samstarfa milli framhaldsskóla og náms- og starfsráðgjafar þar sem markmiðið væri að vinna að betra og markvissara námi sem skilar enn betri árangri.


Jón B. Stefánsson, verknám

Jón B. Stefánsson tók pólinn um verknám sem er virkilega mikilvægur partur af þessari umræðu. Verknáminu er allt öðruvísi háttað heldur en því bóklega og því eru aðrir áhersluþættir sem þarf að beina augum að. Í samfélagi okkar í dag viðgengst það svolítið að bóknám sé það "rétta" og það hagkvæmasta upp á framtíðina að gera. Svo er nefninlega aldeilis ekki og það var einn af stóru punktunum hans Jóns. Við erum öll mismunandi eins og við erum mörg og því mikilvægt að leyfa fjölbreytileikanum að njóta sín ásamt því að kynna nemendur fyrir öllum þeim námsleiðum sem eru í boði. Hann fjallaði um að ákveðnar viðhorfsbreytingar þyrftu að eiga sér stað gagnvart bóklegu námi og einnig að allt vinnustaðanám ætti að standa saman af einhverskonar bóknáms og verklegu námi. Jón benti á, eins og fram kemur í Hvítbók, að aðgerðaráætlun varðandi styttingu verknáms er enn í vinnslu en mun stytting framhaldsskólanna sem tekur gildi næstkomandi haust ekki eiga við verknámsskóla landsins.



Eva Brá Önnudóttir, helstu kostir styttingarinnar, minni miðstýringu og áhrif nemenda

Síðasti ræðumaður kvöldsins var engin önnur en Eva Brá Önnudóttir, nemi í sálfræði við HÍ, fyrrverandi formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema og ein af þeim nemendum sem voru í fyrsta þriggja ára árgangnum í Kvennaskólanum í Reykjavík. Eva fjallaði um sína persónulegu reynslu af náminu í Kvennaskólanum og það gaf ræðu hennar skemmtilegan blæ. Hún benti á það að skólaleiði er eitthvað sem margir nemendur upplifa á síðasta ári sínu í menntaskóla og jafnvel þó svo að árin hafi verið þrjú í Kvennó að þá hafi nemendur verið orðnir svolítið þreyttir þegar líða fór á lokaárið. Það má mögulega rekja til vöntun á fjölbreytni eða þess að nemendur voru í raun ekki að ná að tileinka sér námsefnið heldur var hugsunin sú að komast bara í gegnum það í tæka tíð fyrir útskrift. Páfagaukalærdómur skilar litlum árangri og vill Eva sjá hann fara minnkandi eftir því sem við færumst ofar í námi. Eva talaði vel um minni miðstýringu í kerfinu og nefndi að áhrif nemenda á nám sitt væri lykilatriði í allri menntun.



Pallborðsumræður 

Að loknum erindum ræðumanna tóku við pallborðsumræður þar sem Sigmar Aron Ómarsson, formaður Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík sat fyrir spurningum ásamt ræðumönnum nokkrum; Ara Kristni, Evu Brá, Hafdísi Ingvarsdóttur og Inga Ólafssyni. Sigmar var fulltrúi MR í pallborðinu en Menntaskólinn í Reykjavík er á marga vegu, afar sérstakur hvað þetta málefni varðar.

Menntaskólinn í Reykjavík er byggður upp sem skóli þar sem námið tekur a.m.k fjögur ár. Við styttingu framhaldsskólans mun álag að öllum líkindum aukast til muna og námsframboð skerðast umtalsvert. Hagsmunir nemenda þurfa að vera að leiðarljósi og því vilja MR-ingar ekki leiða styttinguna í gegn þar sem áhrif hennar eru í flestum tilfellum slæm vegna sérstöðu skólans.

Pallborðsumræðurnar voru heldur betur líflegar og margar hendur sem fóru á loft í salnum um leið og umræður hófust. Spurningar á borð við þjóðhagslegu áhrif styttingarinnar, áhrif skiptinemadvalar á nám þegar heim væri komið, eða spurningar varðandi aukin inntökupróf háskólanna var allt eitthvað sem brann á gestum.

Ræðumenn stóðu sig einstaklega vel og get ég með sanni sagt að gestir ráðstefnunnar hafi verið virkilega sáttir með þær umræður sem áttu sér stað um kvöldið.

Við sjáum nú enn betur hve mikilvæg fjölbreytnin er. Það er ekki hægt að setja ótal ólíka skóla undir sama hatt og breyta öllum framhaldsskólum landsins með sama móti. Valfrelsi ætti fremur að ríkja og þróun skólakerfa að fá að eiga sér stað.




Mínar vangaveltur 

Eftir að hafa séð um skipulagninu viðburðarins á alla vegu þá kynntist ég fjölmörgum einstaklingum með mismunandi skoðanir á málefnið. Það að heyra mismunandi rök fyrir skoðunum þeirra ýtti enn fremur undir þá skoðun sem ég er á nú í dag. Ég spyr mig hvort sé hægt að breyta skólakerfi á einn eða annan hátt sama hve mikil fjölbreytnin sé?

Það liggur nefninlega ljóst uppi að framhaldsskólar landsins eru stútfullir af ákaflega mismunandi einstaklingum með ólíkar þarfir og kröfur. Þess vegna er þörf á ákveðnum sveigjanleika sem og fjölbreytni. Með fjölbreytni má ýta undir marga þætti svo sem nýsköpun, frumkvöðlastarfssemi og fleira, svo eitthvað sé nefnt.

Spurningin sem ég varpa fram er því: Er styttingin ákjósanlegasti kosturinn fyrir flesta framhaldsskóla landsins þegar til langs tíma er horft eða er möguleiki á því að framhaldsskólar ákveði hvort þeir vilji stytta nám sitt eður ei?

Nemendur myndu þar af leiðandi hafa úr meiru að velja þar sem fjölbreyttara val væri í boði.



Þakkir

Að lokum vil ég þakka öllum mínum styrktaraðilum enn og aftur fyrir alla þá aðstoð sem ég hef fengið; Verzlunarskóli Íslands, Purde University, Hreinsitækni EHF, Prentsmiðjan Viðey, Kolabrautin, Harpan.
og síðan má ekki gleyma hönnun og uppsetningu plakata og dagsskráa; Rakel Tómasdóttir.
Upptaka ráðstefnunnar: Davíð Goði Þorvarðarson
Ljósmyndun: Alexander Pétur Kristjánsson
og síðast en ekki síst Ragnar Þorvarðarson og fjölskyldan mín, þau voru mér ómetanleg í þessu ferli.

Á næstu misserum mun ég birta myndband frá ráðstefnunni þar sem brot úr ræðum ræðumanna og pallborðsumræður má hlíða á.

Takk kærlega fyrir komuna, ég vona að þið þekkið málefnið nú betur og getið tekið meðvitaða afstöðu til málefnisins.

Kær kveðja,
Unnur Lárusdóttir.

þriðjudagur, 23. september 2014

#HeForShe

Eins og mörg ykkar vita kannski, þá hefur Emma Watson, ræðan hennar á ráðstefnu UN Women og herferð hennar He For She vakið vægast sagt mikla athygli undanfarna daga.

Í ræðunni kemur hún inn á mikilvægustu atriði feminisma, hvernig hugtakið feminismi er oftar en ekki misskilið og síðast en ekki síst...hvernig hugtakið feminismi varðar karla og réttindi þeirra líka, en það virðist oft gleymast.

Það er ekkert annað en grátlegt að hugsa til þess að enn þann dag í dag þá er ójafnrétti milli kynjanna gífurlegt. Ekki aðeins á vinnumarkaðnum, heldur einnig í hinu daglega lífi, hvar sem er í heiminum.

Hugtakið feministi er skilgreint þannig:
"Feministi er karl EÐA kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur EKKI verið náð og vill gera eitthvað í því."

Ójafnrétti varðar okkur öll. Ekki aðeins konur. Ekki aðeins karla. Eins og Emma nefnir réttilega að þá er það virkilega ranglátt að vera dæmd/-ur út frá því af hvaða kyni við erum í staðinn fyrir það hver við erum og hvað við gerum.

Ég hvet alla til þess að leggja við hlustir og velta þessu málefni fyrir sér. Emma, snillingur og hugsuður mikill veit svo sannarlega hvað hún er að segja.

https://www.youtube.com/watch?v=Q0Dg226G2Z8&feature=youtu.be

#HeForShe

Unnur. 




sunnudagur, 10. ágúst 2014

Like literally

The best month of my life...like literally, not kidding.

Í dag eru tvær vikur síðan BFTF ráðstefnan kláraðist og ég lagði af stað heim til Íslands. Þessi færsla kemur virkilega seint þar sem margt hefur gengið á síðan ég kom heim.

Mig langar að byrja á því að segja ykkur lesendum frá síðustu vikunni sem ég átti í Bandaríkjunum.

Eftir að við höfðum kvatt fjölskyldur okkar, sem var gífurlega erfitt - mikið grátið, þá héldum við af stað í 12 klukkustunda rútuferð frá Indiana til Pennsylvainu. Á leiðinni þangað stoppuðum við í Ohio. Það var gaman að sjá svona mikið af Bandaríkjunum á einum degi og það var athyglisvert að sjá hve mismunandi fylkin eru.

Við gistum í New Jersey á fínu hosteli þar sem við náðum einkar vel að hvíla lúin bein eftir langan dag á ferðinni. Daginn eftir þá skoðuðum við Philadelphiu. Við heimsóttum The National Constitution Center og Independance Hall sem var virkilega gaman að sjá. Ég og vinkona mín, Gerda, ákváðum eftir það, að þræða götur borgarinnar, versla, skoða söfn og fara á Hard Rock Café - sem við gerðum. Philadelphia var skemmtileg borg en langt frá því að vera uppáhalds borgin mín, af þeim sem við heimsóttum.

Daginn eftir þá vorum við komin til Washington D.C. Þar gistum við á heimavist í Washington háskóla. Fyrsta daginn okkar í Washington þá skoðuðum við margt, m.a fórum við í sérstaka US Capitol Tour, skoðum Capitol Hill og Holocaust Memorial Museum. Næstu daga þá vorum við mikið á okkar eigin vegum. Við heimsóttum The State Department, the National Mall, skoðuðum minnisvarða og fórum á ótrúlega flotta sýningu - The Lion King, sem verður seint gleymt.

Í okkar eigin frítíma þá fórum við og skoðuðum söfn, t.d The Air and Space Museum. Einnig gengum við mikið um Georgetown og borðuðum kínverskan mat í almenningsgörðum. Bara góðar stundir.

Undir lokin þá var komið að því að kveðja. Það að kveðja þetta frábæra fólk, 45 manns sem er mér sem ný fjölskylda nú í dag, eftir þennan mánuð sem við eyddum saman, var það erfiðasta sem ég hef á ævinni gert. Við sváfum lítið nóttina áður en við lögðum öll af stað heim. Mig minnir að ég hafi einungis sofið fjóra tíma nóttina áður en það var virkilega þess virði. Síðasta kvöldið þá pöntuðum við pizzu, hlustuðum á tónlist og skrifuðum kveðjur í bækur hvers annars. Ég mun aldrei gleyma þessu kvöldi.

Ferðin heim til Íslands gekk vel. Ég átti bágt með að trúa því þegar við vorum að lenda, að það var í alvörunni mánuður síðan ég lagði af stað í þetta ævintýri. Þá vissi ég ekkert hvað beið mín eða hvaða fólki ég myndi kynnast. Aldrei nokkurn tímann hafði ég getað ímyndað mér að þessir einstaklingar, víðsvegar frá Evrópu og Norður Ameríku, myndu hafa svona mikil áhrif á mig og að allt sem við gerðum og lærðum myndi vera eins þroskandi og þetta allt saman var.

Ég er ævinlega þakklát fyrir þessa reynslu og mun nýta mér hana til þess að koma af stað breytingum til hins betra í mínu samfélagi hér á Íslandi. Það sem ég hef einna helst lært af þessum mánuði í Bandaríkjunum, sem þátttakandi á þessari ráðstefnu, er að vera alltaf opin fyrir nýjungum og fjölbreytileikanum. Nú í dag veit ég og sé, hversu lík við erum, sama hvaðan við komum, en á sama tíma er svo margt sem greinir okkur í sundur og gerir okkur ólík. Ég hef öðlast þekkingu og reynslu sem ég vissi ekki að ég myndi öðlast, áður en ég fór út. Eitt það merkilegasta og líklegast það sem skipir þó mestu máli af öllu því sem við lærðum, eru samböndin og tengslin sem við mynduðum við hvort annað. Þau tengsl eru órjúfanleg og munu vara að eilífu.

Síðan ég kom heim hef ég verið að ferðast mikið og eytt tíma með vinum. Nú er vinkona mín Gerda frá Eistlandi komin í heimsókn og verður hér þar til næsta föstudag, svo það eru aðeins spennandi tímar framundan.

Ég ætla að leyfa nokkrum myndum að njóta sín hér að neðan.











































Xo, 
Unnur