The best month of my life...like literally, not kidding.
Í dag eru tvær vikur síðan BFTF ráðstefnan kláraðist og ég lagði af stað heim til Íslands. Þessi færsla kemur virkilega seint þar sem margt hefur gengið á síðan ég kom heim.
Mig langar að byrja á því að segja ykkur lesendum frá síðustu vikunni sem ég átti í Bandaríkjunum.
Eftir að við höfðum kvatt fjölskyldur okkar, sem var gífurlega erfitt - mikið grátið, þá héldum við af stað í 12 klukkustunda rútuferð frá Indiana til Pennsylvainu. Á leiðinni þangað stoppuðum við í Ohio. Það var gaman að sjá svona mikið af Bandaríkjunum á einum degi og það var athyglisvert að sjá hve mismunandi fylkin eru.
Við gistum í New Jersey á fínu hosteli þar sem við náðum einkar vel að hvíla lúin bein eftir langan dag á ferðinni. Daginn eftir þá skoðuðum við Philadelphiu. Við heimsóttum The National Constitution Center og Independance Hall sem var virkilega gaman að sjá. Ég og vinkona mín, Gerda, ákváðum eftir það, að þræða götur borgarinnar, versla, skoða söfn og fara á Hard Rock Café - sem við gerðum. Philadelphia var skemmtileg borg en langt frá því að vera uppáhalds borgin mín, af þeim sem við heimsóttum.
Daginn eftir þá vorum við komin til Washington D.C. Þar gistum við á heimavist í Washington háskóla. Fyrsta daginn okkar í Washington þá skoðuðum við margt, m.a fórum við í sérstaka US Capitol Tour, skoðum Capitol Hill og Holocaust Memorial Museum. Næstu daga þá vorum við mikið á okkar eigin vegum. Við heimsóttum The State Department, the National Mall, skoðuðum minnisvarða og fórum á ótrúlega flotta sýningu - The Lion King, sem verður seint gleymt.
Í okkar eigin frítíma þá fórum við og skoðuðum söfn, t.d The Air and Space Museum. Einnig gengum við mikið um Georgetown og borðuðum kínverskan mat í almenningsgörðum. Bara góðar stundir.
Undir lokin þá var komið að því að kveðja. Það að kveðja þetta frábæra fólk, 45 manns sem er mér sem ný fjölskylda nú í dag, eftir þennan mánuð sem við eyddum saman, var það erfiðasta sem ég hef á ævinni gert. Við sváfum lítið nóttina áður en við lögðum öll af stað heim. Mig minnir að ég hafi einungis sofið fjóra tíma nóttina áður en það var virkilega þess virði. Síðasta kvöldið þá pöntuðum við pizzu, hlustuðum á tónlist og skrifuðum kveðjur í bækur hvers annars. Ég mun aldrei gleyma þessu kvöldi.
Ferðin heim til Íslands gekk vel. Ég átti bágt með að trúa því þegar við vorum að lenda, að það var í alvörunni mánuður síðan ég lagði af stað í þetta ævintýri. Þá vissi ég ekkert hvað beið mín eða hvaða fólki ég myndi kynnast. Aldrei nokkurn tímann hafði ég getað ímyndað mér að þessir einstaklingar, víðsvegar frá Evrópu og Norður Ameríku, myndu hafa svona mikil áhrif á mig og að allt sem við gerðum og lærðum myndi vera eins þroskandi og þetta allt saman var.
Ég er ævinlega þakklát fyrir þessa reynslu og mun nýta mér hana til þess að koma af stað breytingum til hins betra í mínu samfélagi hér á Íslandi. Það sem ég hef einna helst lært af þessum mánuði í Bandaríkjunum, sem þátttakandi á þessari ráðstefnu, er að vera alltaf opin fyrir nýjungum og fjölbreytileikanum. Nú í dag veit ég og sé, hversu lík við erum, sama hvaðan við komum, en á sama tíma er svo margt sem greinir okkur í sundur og gerir okkur ólík. Ég hef öðlast þekkingu og reynslu sem ég vissi ekki að ég myndi öðlast, áður en ég fór út. Eitt það merkilegasta og líklegast það sem skipir þó mestu máli af öllu því sem við lærðum, eru samböndin og tengslin sem við mynduðum við hvort annað. Þau tengsl eru órjúfanleg og munu vara að eilífu.
Síðan ég kom heim hef ég verið að ferðast mikið og eytt tíma með vinum. Nú er vinkona mín Gerda frá Eistlandi komin í heimsókn og verður hér þar til næsta föstudag, svo það eru aðeins spennandi tímar framundan.
Ég ætla að leyfa nokkrum myndum að njóta sín hér að neðan.
Xo,
Unnur