þriðjudagur, 24. júní 2014

Four more days...

Í dag eru akkúrat fjórir dagar þar til ég legg af stað til Indiana í Bandaríkjunum. Það er eins og það hafi verið í gær þegar ég fékk símtal frá sendiráðinu í sambandi við það að ég hafi verið valin til þess að fara út fyrir Íslands hönd núna í júní. Ég á bágt með að trúa þessu öllu saman.

Undanfarnar tvær vikur hafa verið ótrúlegar. Ég ferðaðist með fjölskyldunni til Danmerkur og Krítar. Þessi ferð var eitt stórt ævintýri. Við gerðum margt og ferðuðumst mikið. Það er erfitt að velja það sem stóð upp úr en ég held að það hafi klárlega verið ferðin okkar til draumaeyjunnar Santorini. Eyjan er með eindæmum falleg og ég mæli með henni fyrir þá sem vilja gera upplifa eitthvað einstakt og öðruvísi. Þessi eyja hefur upp á svo rosalega margt að bjóða.

Nú eyði ég dögunum mínum í undirbúning fyrir ráðstefnuna úti. Þegar ég kem út þarf ég að halda kynningu um mig sjálfa, aðra um Ísland og taka þátt í alls kyns verkefnum. Ég veit ekki hvort orðið spenna lýsi því ástandi sem ég er í nógu vel.

Ég ætla að deila með ykkur nokkrum myndum frá ferðalagi mínu til Santorini og myndbandi sem Jorge Loures frá Portúgal, strákur sem verður með mér úti í Indiana, gerði um daginn.

Næst þegar ég blogga þá verð ég komin til Indiana og þá mun ég bæði blogga á íslensku og ensku. Þannig að, þar til næst.







Draumur!

Hér má sjá myndbandið: http://www.youtube.com/watch?v=vuMwxG411HU


Unnur x


sunnudagur, 1. júní 2014

Road trip

Í gær þá fór ég með pabba, afa Jóa og Davíð vini mínum í smá road trip - á Gullfoss og Geysi! Það var rosa gott veður þó svo að spáin hafi verið slæm. Við tókum upp virkilega mikið efni og hlakka ég mikið til þess að sýna ykkur afraksturinn!

Ég ætla einfaldlega að leyfa myndunum að tala! Ekkert sérstök gæði, myndirnar teknar á iPhone 4.



Davíð að vera snillingur




Smá ganga upp á fjall 


Gullfoss í allri sinni dýrð


Ég mæli með því að reyna að komast reglulega út úr bænum. Það allavega gefur mér mikið. Smá friður og ró eftir amstur vikunnar.

xx, 
Unnur