mánudagur, 14. júlí 2014

The third week

Elsku lesendur. Númer eitt, takk fyrir að gefa ykkur smá tíma í það að lesa þetta saklausa en þó áhugaverða (vonandi) blogg mitt. Númer tvö. Afsakið innilega, erlendu lesendur - ég hafði hugsað mér að blogga á íslensku og ensku en þar sem tíminn sem ég gef mér í blogg er naumur þá hef ég einungis bloggað á íslensku þar sem íslenski lesendahópurinn er mun stærri en sá erlendi, auðvitað.

Ég ætla að reyna að hafa þetta eins stutt og laggott eins og hægt er þar sem ég á langan dag fyrir höndum á morgun, þriðjudag.

Á föstudaginn síðastliðinn þá héldum við stóran viðburð, veislu fyrir allar fjölskyldurnar sem sjá um okkur núna og alla þátttakendur sem og stjórnendur og skipuleggjendur. Það var virkilega skemmtilegt og ég er yfir mig hrifin af "host fjölskyldunni" minni. Þau eru hreint út sagt æðisleg. Ég og Katelynn, elsta barn hjónanna Scott og Mandy, erum orðnar virkilega góðar vinkonur og ég hef náð að sannfæra Katelynn um að koma til Íslands í heimsókn eins fljótt og auðið er. Josh og Cootie (eins og við köllum hana) eru einnig yndisleg og það er virkilega gaman að eyða tíma með þeim.

Á föstdaginn pöntuðum við okkur bara pizzu, spjölluðum og komum okkur fyrir. Allt voða notalegt. Á laugardaginn fórum við í kajakferð sem var stórkostlegt. Ég var á kajak með Katelynn og það gekk virkilega vel. Seinna um daginn þá fórum við heim og höfðum það notalegt. Um kvöldið heimsóttum við svo veitingastaðinn Olive Garden sem er amerískur-ítalskur veitingastaður. Það var virkilega gaman að sjá hvað henni Martinu, góðvinkonu minni frá Ítalíu, leist á matinn þar sem hann var ekkert í líkingu við ekta ítalskan mat - en hann var þó virkilega góður og ég hef sjaldan verið eins södd.

Á sunnudeginum þá áttum við notalegt hádegi saman. Við stelpurnar sváfum út. Seinna komu nágrannar saman með hádegismat og við borðuðum saman. Eftir það þá tókum við þátt í heimakirkju sem var áhugavert, skemmtilegt og fræðandi. Það var "eyeopening" að sjá hvernig þau iðka trú sína vel án þess að fara reglulega í kirkju. Skemmtilegt að sjá hvernig þau líta á kristina trú og hvernig þau helga sig trúnni.

Við enduðum daginn á því að keyra að litlu vatni þar sem við lékum okkur og syntum allan daginn, í sólinni. Klifruðum í klettum og sveifluðum okkur yfir vatninu á reipi alveg eins og sjá má í þessum ekta bandarísku kvikmyndum.

Dagurinn í dag, mánudagur, hefur verið skemmtilegur. Við ferðuðumst til Delphi þar sem við fórum í canal ferð, unnum samfélagsþjónustu, borðuðum hádegismat og skoðuðum tvö flott söfn. Nú í kvöld höfum við verið að elda fyrir alþjóðlegan kvöldverð á morgun (International Food Bazaar). Ég ákvað bara að elda grjónagraut. Það var eins íslenskt og ég komst þar sem flest hráefni sem ég þarfnast í alíslenskan kvöldverð er aðeins hægt að nálgast á Íslandi. Ég hlakka til að sjá hvernig það gengur annað kvöld.

Þetta blogg endaði lengra en ég ætlaði mér. Ég vona að þið heima hafið gaman af því að lesa um hvað á daga mína drífur hér í Bandaríkjunum. Ég er að skemmta mér konunglega...langar ekkert heim (sorry mamma og pabbi). Yfir heildina litið er ég alveg stórkostlega þakklát og glöð með að hafa fengið þetta tækifæri. Þetta prógramm hefur svo sannarlega opnað augu mín enn meira, ég hef fengið að kynnast mismunandi menningarheimum í gegnum þátttakendurna, kynnst bandarískri menningu og upplifað hluti sem ég hafði ekki ímyndað mér að ég myndi nokkurn tímann upplifa. Síðast en ekki síst hef ég eignast eina bestu vini í heiminu, sem enginn getur ímyndað sér. Þau eru kjarni verkefnisins og ég elska þau alltof mikið (ok, nóg komið af væmni í bili).


Ómetanleg


Flottastar


Barbara turning 18


Me and my lovely Katelynn


The crew




Hay bale fun


Sunnudags-heima-kirkja


Fun at the creek


Við komumst allar inn í skápinn hennar Katelynn í skólanum



Ekkert lélegt sólsetrið hérna á kvöldin


Fun at the bus


Allar átta konurnar á heimilinu


At Olive Garden


Þessir uppáhalds vinir mínir, Nathan og Boki



<3


Hljómsveitin Barcelona



Climbing


Nettar



Knús á klakann, 
Unnur xx

föstudagur, 11. júlí 2014

Time flies when you're having fun

Það er ótrúlegt hvað tíminn getur liðið hratt. Mér finnst eins og ég hafi komið hingað í Purdue háskóla í gær - svo er nú ekki í pottinn búið. Vika tvö er á enda og nú er komið að vist hjá fjölskyldum í heila 10 daga. Í kvöld mun fjölskyldan mín sem sagt sækja mig og fjórar aðrar stelpur sem koma frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu og Slóvakíu. Við munum dvelja hjá þeim og kynnast venjulegu bandarísku fjölskyldulífi og menningu. Við erum allar virkilega spenntar. Þessi fjölskylda samanstendur af mömmu, pabba, Mandy og Scott og þremur börnum, þeim Katelynn, Joshua og Caroline. Við munum ferðast mikið, fara í fjallgöngur, versla, fara á söfn og hlaupa 5 km til styrktar dýragarði hér í West Lafayette.

Síðast liðnir dagar hafa verið stórkostlegir. Tímarnir sem ég er búin að fara í eru m.a Debates, Journalism, Media, International Relations og Education in the U.S. Þessir tímar hafa verið misskemmtilegir en allir góðir þar sem prófessorarnir sem koma hingað til okkar og eru með fyrirlestra eru í fyrsta flokki.

Við höfum ekki einungis verið inni í tímum og að vinna verkefni heldur höfum við fengið að kynnast bandarískri menningu. Við höfum ferðast mikið hérna í næsta nágrenni við háskólann - nánar tiltekið hér í West Lafayette, fengið okkur ís í kvöldgöngutúrum, farið í ræktina og í danstíma, einnig skelltum við okkur á stórkostlega tónleika með hljómsveitinni The Fray. Við héldum hæfileikakeppni þar sem ég og tvær vinkonur mínar, Anita (frá Noregi) og Lelde (frá Latvia) sömdum rapplag og röppuðum með prýði. 4. júlí var einnig ótrúlegur dagur - uppáhaldsdagurinn minn til þessa ásamt ferðinni okkar til Chicago! Það eru algjör forréttindi að fá að ferðast, fræðast og upplifa og ég er óendanlega þakklát fyrir að geta gert það sem ég er að gera í dag.

Að þessu sögðu vil ég deila nokkrum myndum með ykkur ásamt flottu myndbandi eftir vin minn Jorge frá Portúgal.


Ég og Kayla






Besta vinkona mín


Shedd Aquarium


Nathan minn


Okkur leiðist ekki að versla


Gerde, Unnur, Lelde




Við erum besta teymi í heimi



Jorge frá Portúgal - bestur


Unnur, Luke, Justas, Gerde


Ein sátt með 4th of July



Engin orð sem lýsa þessari hamingju


Einungis gott fólk


Markaður


Á leið til Indiana


THE FRAY 



Iceland, Latvia, Norway getting ready for the talent show


View


The Blue Man Show


Mér þykir svo vænt um alla þessa góðu vini mína. 

Knús, 
Unnur 

miðvikudagur, 2. júlí 2014

Iceland

Þá er degi fjögur lokið. Mjög gaman í dag. Skemmtilegir tímar, Civic Education og Project Citizen. Ég hafði meiri áhuga á Project Citizen með Astu Balkute sem er einn af leiðbeinendunum okkar. Hún er frábær og náði vel til allra. Við ræddum hvaða skyldum við gegnum og hvaða réttindi við höfum í okkar þjóðfélagi sem var afar áhugavert þar sem það er svo margt mismunandi milli landa.

Í kvöld þá kynntum við löndin okkar. Allir áttu að vera með þriggja mínútna kynningu um landið sitt. Margir voru með Power Point kynningu, munnlega kynningu en aðrir með myndband. Ég var ein af þeim sem voru með myndband.

Davíð Goði og Alexander Pétur, vinir mínir, voru mér stoð og styttur í þessu verkefni. Við tókum allt upp, skipulögðum allt og reyndum að gera okkar allra besta. Ég tel að okkur hafi gengið bara frekar vel, allavega tóku krakkarnir í BFTF vel í þetta allt saman og óskuðu mér margsinnis til hamingju með myndbandið. Í rauninni var ég orðlaus þar sem ég bjóst ekki við viðbrögðum sem og þessum.

Hér að neðan er myndbandið ásamt nokkrum myndum frá Bláa lóninu! Ég vona að þið njótið og endilega látið okkur vita ykkur líkaði það.





Unnur - Iceland: https://www.youtube.com/watch?v=E5iJGZ3zWhs&feature=youtu.be


Bestu kveðjur frá Indiana,
Unnur