mánudagur, 14. júlí 2014

The third week

Elsku lesendur. Númer eitt, takk fyrir að gefa ykkur smá tíma í það að lesa þetta saklausa en þó áhugaverða (vonandi) blogg mitt. Númer tvö. Afsakið innilega, erlendu lesendur - ég hafði hugsað mér að blogga á íslensku og ensku en þar sem tíminn sem ég gef mér í blogg er naumur þá hef ég einungis bloggað á íslensku þar sem íslenski lesendahópurinn er mun stærri en sá erlendi, auðvitað.

Ég ætla að reyna að hafa þetta eins stutt og laggott eins og hægt er þar sem ég á langan dag fyrir höndum á morgun, þriðjudag.

Á föstudaginn síðastliðinn þá héldum við stóran viðburð, veislu fyrir allar fjölskyldurnar sem sjá um okkur núna og alla þátttakendur sem og stjórnendur og skipuleggjendur. Það var virkilega skemmtilegt og ég er yfir mig hrifin af "host fjölskyldunni" minni. Þau eru hreint út sagt æðisleg. Ég og Katelynn, elsta barn hjónanna Scott og Mandy, erum orðnar virkilega góðar vinkonur og ég hef náð að sannfæra Katelynn um að koma til Íslands í heimsókn eins fljótt og auðið er. Josh og Cootie (eins og við köllum hana) eru einnig yndisleg og það er virkilega gaman að eyða tíma með þeim.

Á föstdaginn pöntuðum við okkur bara pizzu, spjölluðum og komum okkur fyrir. Allt voða notalegt. Á laugardaginn fórum við í kajakferð sem var stórkostlegt. Ég var á kajak með Katelynn og það gekk virkilega vel. Seinna um daginn þá fórum við heim og höfðum það notalegt. Um kvöldið heimsóttum við svo veitingastaðinn Olive Garden sem er amerískur-ítalskur veitingastaður. Það var virkilega gaman að sjá hvað henni Martinu, góðvinkonu minni frá Ítalíu, leist á matinn þar sem hann var ekkert í líkingu við ekta ítalskan mat - en hann var þó virkilega góður og ég hef sjaldan verið eins södd.

Á sunnudeginum þá áttum við notalegt hádegi saman. Við stelpurnar sváfum út. Seinna komu nágrannar saman með hádegismat og við borðuðum saman. Eftir það þá tókum við þátt í heimakirkju sem var áhugavert, skemmtilegt og fræðandi. Það var "eyeopening" að sjá hvernig þau iðka trú sína vel án þess að fara reglulega í kirkju. Skemmtilegt að sjá hvernig þau líta á kristina trú og hvernig þau helga sig trúnni.

Við enduðum daginn á því að keyra að litlu vatni þar sem við lékum okkur og syntum allan daginn, í sólinni. Klifruðum í klettum og sveifluðum okkur yfir vatninu á reipi alveg eins og sjá má í þessum ekta bandarísku kvikmyndum.

Dagurinn í dag, mánudagur, hefur verið skemmtilegur. Við ferðuðumst til Delphi þar sem við fórum í canal ferð, unnum samfélagsþjónustu, borðuðum hádegismat og skoðuðum tvö flott söfn. Nú í kvöld höfum við verið að elda fyrir alþjóðlegan kvöldverð á morgun (International Food Bazaar). Ég ákvað bara að elda grjónagraut. Það var eins íslenskt og ég komst þar sem flest hráefni sem ég þarfnast í alíslenskan kvöldverð er aðeins hægt að nálgast á Íslandi. Ég hlakka til að sjá hvernig það gengur annað kvöld.

Þetta blogg endaði lengra en ég ætlaði mér. Ég vona að þið heima hafið gaman af því að lesa um hvað á daga mína drífur hér í Bandaríkjunum. Ég er að skemmta mér konunglega...langar ekkert heim (sorry mamma og pabbi). Yfir heildina litið er ég alveg stórkostlega þakklát og glöð með að hafa fengið þetta tækifæri. Þetta prógramm hefur svo sannarlega opnað augu mín enn meira, ég hef fengið að kynnast mismunandi menningarheimum í gegnum þátttakendurna, kynnst bandarískri menningu og upplifað hluti sem ég hafði ekki ímyndað mér að ég myndi nokkurn tímann upplifa. Síðast en ekki síst hef ég eignast eina bestu vini í heiminu, sem enginn getur ímyndað sér. Þau eru kjarni verkefnisins og ég elska þau alltof mikið (ok, nóg komið af væmni í bili).


Ómetanleg


Flottastar


Barbara turning 18


Me and my lovely Katelynn


The crew




Hay bale fun


Sunnudags-heima-kirkja


Fun at the creek


Við komumst allar inn í skápinn hennar Katelynn í skólanum



Ekkert lélegt sólsetrið hérna á kvöldin


Fun at the bus


Allar átta konurnar á heimilinu


At Olive Garden


Þessir uppáhalds vinir mínir, Nathan og Boki



<3


Hljómsveitin Barcelona



Climbing


Nettar



Knús á klakann, 
Unnur xx

Engin ummæli:

Skrifa ummæli