miðvikudagur, 28. maí 2014

Busy making other plans?

Life is what happens to you while you're busy making other plans - John Lennon

Þessi setning náði til mín á þessum rólega miðvikudegi. Ég er ekkert að grínast þegar ég segi rólega. Ég svaf yfir mig sem gerist ekki oft. Þegar það gerist þá líður mér stundum illa, einhver ábyrgðartilfinning hellist yfir mig og ég hugsa um allt það sem ég hefði getað gert á meðan ég var sofandi - það er ekki heilbrigt og alls ekki gott. Í morgun þegar ég vaknaði þá hugsaði ég með sjálfri mér að ég ætlaði ekki að leyfa þessari tilfinningu að hellast yfir mig, ég vissi að ég væri búin að vera þreytt og ég hafði næga ástæðu til þess að sofa út.

Það er einmitt þetta sem mörg okkar glíma við, allavega kannast ég vel við þetta. Við erum svo upptekin og ábyrg að um leið og við förum aðeins út af veginum, þegar eitthvað óvænt gerist þá förum við í kerfi og veltum okkur of mikið upp úr afleiðingunum (þetta með að sofa yfir sig er bara saklaust lítið dæmi). Nú veit ég ekki hve mörg ykkar lesenda skilja það sem ég er að reyna að segja hér svo ég ætla bara að segja það.

Hættum að vera stressuð, fögnum óvæntu hlutunum og greinum á milli þess sem skiptir okkur máli og þess sem skiptir okkur ekki máli. Áður en við vitum af verður tíminn þotinn frá okkur og eina sem við getum gert er að líta til baka á misgóðar minningar og horfa fram á veginn með gleði, jákvæðni og hamingju í fararteskinu - bjartsýnin að leiðarljósi.


Ég hef mikið verið að hugsa undanfarið. Hvað skiptir mig máli? Hver vil ég vera? Hverjar eru fyrirmyndir mínar? Afhverju geri ég það sem ég geri? Afhverju hef ég áhuga á því sem ég hef áhuga á? Afhverju skiptir álit annarra mig máli? Afhverju þykir mér svona ótrúlega vænt um fólkið sem ég umgengst? Hvers vegna ræð ég ekki við allar mínar langanir og drauma?

Ég fæ svör við þessum spurningum dagsdaglega en velti þeim þó alltaf jafn mikið fyrir mér.

Ég veit í sanni sagt ekki hvers vegna ég þori því að skrifa þennan pistil. Ég er í hreinskilni sagt skít hrædd við það hvað lesendum finnst um það sem ég skrifa. Einnig veit ég ekkert hverjir það eru sem að lesa það sem ég birti. Eina sem ég get verið viss um er að ég er hreinskilin, ég er ekki bara að skrifa eitthvað heldur er ég að skrifa um það sem skiptir mig máli, gæti mögulega skipt öðrum máli og gæti þess vegna hjálpað einhverjum. Eina sem ég þarf að gera er að bomba þessu þarna út - á netið þar sem hver sem er hefur aðgang að þessum hugsunum mínum og á sama tíma vona ég að einhver hugsi á svipaðan hátt sem getur tekið einhvern lærdóm af því sem ég hef fram að færa.

Nú þegar sumarfríið er gengið í garð hjá mörgum okkar þá tekur einhver ný rútína við…eða bara alls engin rútína. Við fögnum því að fá loksins frið, frið og tíma til þess að gera það sem okkur dreymir um. Sum okkar ætla að ferðast í sumar, önnur vinna. Sama hvað við gerum þá erum við öll fegin því að geta verið áhyggjulaus í sumar og notið eins og viljum.

En hvers vegna erum við svona fegin? Ég hugsa að þessi tilfinning séu orsakir þess að hafa verið of föst innan ákveðins ramma í allan vetur. Ímyndaðu þér ef þú hefðir eytt aðeins meiri tíma í það sem þér finnst spennandi, prófað fleiri nýja hluti og hugsað minna um álit eða hugsanir annarra. Hver væri tilfinningin sem þú fyndir fyrir núna?

Nú þegar ég er búin að varpa fram svo mikið af spurningum að ég sé ekki fram á að geta svarað þeim öllum í einum pistli…nema ég vilji fara að skrifa einhverja ritgerð hérna.

Það sem ég tel mikilvægt og það sem ég hef áttað mig betur og betur á síðast liðið ár er að við þurfum að greina á milli þess sem skiptir okkur máli. Þegar við gerum það þá verðum við ekki bara sáttari með okkur sjálf heldur tökum við eftir svo mörgum nýjum og áhugaverðum hlutum. Spurningarnar sem við verðum að leggja fyrir okkur sjálf eru m.a hvað vil ég fá út úr því sem ég geri á hverjum degi? Hvað er það sem gerir mig hamingjusama? Er það álit annarra á mér eða er það hvernig ég lít á sjálfa/n mig? Í hvað vil ég helst verja tíma mínum og út úr hverju ætli ég fá sem mestan innblástur?

Fyrir ykkur sem hafið alltaf nóg á ykkar könnu, skipuleggjið ykkur eins og enginn sé morgundagurinn og viljið alltaf klára allt sem er á planinu ykkar sem fyrst, þá segi ég: Það er ekki heilbrigt að vera of skipulagður, ég þekki það af eigin reynslu. Það er ekki gott að vera búin að ákveða allt fyrirfram og vilja ganga eftir einhverri ákveðinni dagskrá alla daga. Auðvitað er gott að setja sér einhver markmið fyrir hvern dag, um að ná að klára einhverja ákveðna hluti en við íslendingar eigum það of mikið til að leyfa metnaði okkar stjórna okkur gjörsamlega - við verðum að temja okkur það að prófa nýja hluti og vera opnari fyrir fjölbreytileikanum, því þegar upp er staðið að þá eru okkar bestu minningar þær sem við búum til þegar við erum að gera það sem við höfum ekki gert áður - þegar við förum út fyrir þægindarammann og ögrum okkur sjálfum.





Nokkrar viðeigandi myndir,
njótið dagsins, 
Unnur 

föstudagur, 23. maí 2014

Long time no see

Virkilega langt síðan ég birti færslu og því kominn góður tími á nýja. Margt búið að gerast undanfarinn mánuð, meira en ég gat nokkurn tímann búist við. 

Prófin eru búin og einkunnirnar komnar, gæti ekki verið sáttari. USA ferðin mín nálgast óðum og undirbúningur og spenna í algjöru hámarki. Sumarfríið formlega dottið í hús. 

Undanfarnir dagar eru búnir að fara í það að hitta allt nánasta fólkið mitt áður en ég kemst í sæluna í DK og á Krít með familíunni. Betra gæti það ekki verið. Dagurinn í dag fór í spennandi verkefni sem ég mun kynna úti í Bandaríkjunum í sumar. Mikið stúss í tengslum við það niðri í bæ með besta crew-i í heimi, Davíð og Alexander vinum mínum tveimur, ásamt því að kaupa útskriftargjafir og fleira með vinkonu!

Fyrir ykkur sem ekki vitið að þá er ég á leiðinni í eins mánaðar verkefni úti í Indiana í Bandaríkjunum í sumar. Þar verð ég þátttakandi fyrir Íslands hönd. Einn einstaklingur frá hverju Evrópulandi er sendur út til þess að taka þátt í verkefninu. Unnið verður með alheimsvandamál, mannréttindamál, jafnrétti kynjanna, pólitík, viðskipti, alþjóðafræði og fleira spennandi. Við munum sækja umræðutíma, fara á fyrirlestra, halda fyrirlestra, ferðast um Bandaríkin, kynnast mismunandi menningarheimum og margt fleira. Þetta er virkilega stórt og spennandi allt saman og gæti ég ekki verið glaðari að hafa verið valin af öllum þeim sem sóttu um. Það eru spennandi tímar framundan og það er bókað mál að sumarið verður einstök upplifun. 

Fyrir ykkur sem lesið þetta blessaða saklausa blogg mitt að þá vil ég segja ykkur frá verkefni dagsins. Í dag var virkilega spennandi en krefjandi dagur þar sem ég ásamt upptökumanni og ljósmyndara gengum um bæinn og tókum upp fyrir myndband sem ég mun kynna á fyrirlestri þegar til Bandaríkjanna er komið. Þegar myndbandið er fullunnið og ég búin að kynna það að þá mun ég pósta því hingað fyrir ykkur til að sjá. Mikil vinna er lögð í myndbandið og ég er virkilega spennt að sjá útkomuna. 

Hér fylgja með myndir frá deginum í dag en ég mun að öllum líkindum leyfa ykkur að fylgjast með á næstunni þegar við höldum upptökum áfram! 








xx
Unnur