miðvikudagur, 26. mars 2014

Fantasíumynd - Elísa Ósk

Ég rakst á skemmtilega grein um daginn, eða reyndar fyrir frekar löngu en þar var myndlistakonan hún Elísa Ósk í brennipunkti. Ég sá myndir frá henni, nánar tiltekið fantasíumyndir og þær voru hreint út sagt stórkostlegar. Mikil vinna sem hafði greinilega farið í gerð þeirra og skemmtileg saga á bak við hverja og eina mynd.

Ég heillaðist það mikið að mig langaði að eignast mína eigin og sendi strax á Elísu póst í gegnum Facebook. Ég fékk nánustu vini mína til þess að lýsa mér í nokkrum orðum, tók svo lýsingarnar saman og sendi á Elísu ásamt mynd. Elísa fór svo beint í það að vinna að myndinni minni sem ég er ótrúlega sátt með. Það sem mér finnst einnig vera gríðarlegur kostur er að myndirnar eru á viðráðanlegu verði svo þetta er tilvalið sem gjöf - persónulegt og öðruvísi!

Í framhaldi af þessu fékk ég að senda nokkrar spurningar á Elísu. Hún tók vel í það svo hér að neðan getið þið séð stutt brot úr viðtalinu.

Hver er menntun Elísu? Ég útskrifaðist úr Borgarholtsskóla af listnámsbraut (margmiðlunarhönnun) einnig með stúdentspróf árið 2006. Útskrifast úr Háskóla Íslands sem myndmenntakennari árið 2011. 

Hver er Elísa Ósk Viðarsdóttir? Elísa Ósk Viðarsdóttir er mamma, myndmenntakennari í Árbæjarskóla, myndlistarkona og í mínum frítíma æfi ég crossfit og læri tattoo art.

Ég spurði Elísu einnig að því hvenær áhuginn vaknaði fyrir myndlistinni en hún svaraði: "Ég hef alla mína tíð haft mikinn áhuga á myndlist og hef alltaf verið að teikna eitthvað. Eftir að ég meiddist og þurfti að hætta í handbolta og fótbolta, þá hafði ég mikið meiri tíma en áður. Það var ekki fyrr en þá, fyrir einu og hálfu ári síðan, sem ég byrjaði að teikna af alvöru." Hvernig kom hugmyndin að gerð fantasíumynda upp á borðið? Hugmyndin að fantasíumyndunum byrjaði þannig að ég var að teikna gjöf og langaði að tengja teikninguna við persónuna, þá datt mér í hug að blanda myndum (táknum) í tengslum við t.d. áhugamál eða stjörnumerki hvers og eins inn í andlitsmyndina sjálfa. Í verkunum vinn ég með vatnsliti og blýatnsteikningu í blandaðri tækni.

Ég þakka Elísu Ósk, þessari frábæru listakonu kærlega fyrir þessi fínu svör. Ef þið viljið sjá fleiri verk eftir Elísu nú eða fjárfesta í ykkar eigin mynd að þá má hafa samband á Facebook síðu hennar: https://www.facebook.com/elisaoskmyndlist


Hér er svo myndin sem Elísa gerði af mér ásamt nokkrum öðrum sem má finna á Facebook síðunni.



Elísa Ósk. 



Hér má sjá myndina mína í vinnslu. 




Verk eftir Elísu.


Hér má svo sjá myndina sem Elísa teiknaði af mér en ég gæti ekki verið sáttari með útkomuna. Takk enn og aftur Elísa!

xo Unnur




mánudagur, 24. mars 2014

Myndaveggur

Ég hef verið að vinna að herberginu mínu í dálítinn tíma. Við tókum það í gegn fyrir svolitlu síðan en við máluðum allt upp á nýtt, keyptum nýjar hillur, skápa, fataskáp og spegil. Ég var rosalega sátt með útkomuna og herbergið orðið miklu þægilegra og aðgengilegra.

Ég hef rosa mikinn áhuga á hönnun og arkítektúr þannig að dunda mér svona við herbergið mitt og heimilið í heild sinni er eitthvað sem mér finnst voða spennandi. Ég hef einnig mikinn áhuga á ljósmyndun og þeir sem þekkja mig vel vita að ég tek mikið af myndum (oft í tíma og ótíma) en fyrir mér eru myndir minningar sem lifa með okkur um ókomna tíð. Því ákvað ég að leita til Hans Petersen - http://hanspetersen.is og prenta út uppáhalds myndirnar mínar af Instagram. Myndirnar sem ég lét prenta út fyrir mig urðu ansi margar en það góða er að þær voru á frábæru verði!

Útkoman varð þessi svona líka fíni Instagram-veggur sem gerir heilmikið fyrir herbergið! Ég er ótrúlega glöð með myndirnar og mæli hiklaust með Hans Petersen, góð þjónusta, tekur stuttan tíma og ódýrara en á mörgum öðrum stöðum.

Deili hérna með ykkur nokkrum myndum.





Vona að þetta sé kannski smá inspo fyrir ykkur sem eruð í einhvers konar breytinga-pælingum. 

Love, 
Unnur



laugardagur, 22. mars 2014

Laugardags fjallganga

Dagurinn í dag var tekinn með trompi en ég fór ásamt vinum mínum, frábæru og yndislegu Kristínu Fjólu og Þórði Inga í fjallgöngu á Úlfarsfell. Mikið sem það var yndislegt. Við vorum öll sammála að við værum gjörsamlega endurnærð eftir ferðina. Veðrið í dag var einnig einstaklega fallegt! Svolítið kalt en sólin bætti það upp.

Ég er mikil útivistarmanneskja. Ég elska að vera utandyra og ganga á fjöll, fara á skíði eða bara taka gott útihlaup.








Það var svo gott að hitta þessa snillinga og njóta saman. Við ræddum allt milli himins og jarðar - fóstureyðingar, femínisma, stjórnmál en líka bara þetta venjulega. Svona gæðastundir og miklar pælingar minna mig enn betur á það hvað ég er heppin og þakklát (ældi smá upp í mig - væmið en stundum er það betra).

Ég mæli mikið með Úlfarsfelli fyrir þá sem hafa gaman af fjallgöngum en að mínu mati er það tilturlega auðvelt fjall en á sama tíma skemmtilegt með fjölmörgum og mismunandi gönguleiðum.

Þetta verður ekki lengra í dag, næst tekur við deit með systur minni Karen á Saffran sem bregst manni aldrei - rosa næs.

xo Unnur




fimmtudagur, 20. mars 2014

HJALTALÍN

Ég gjörsamlega dýrka og dái hljómsveitina Hjaltalín. Þetta er hljómsveit sem er ein af mínum uppáhalds hér á Íslandi. Þegar vinkona mín Rakel sagði mér að það yrðu tónleikar með þeim í Eldborgarsal Hörpu 16. apríl að þá vorum við ekki lengi að slá til. Einnig veit ég að strengjasveit mun koma fram með hljómsveitinni svo ekki skemmir það fyrir!

Enn eru miðar í sölu inni á midi.is svo ef þú ert eins mikill fan og ég að þá mæli ég með því að þú skellir þér - http://midi.is/tonleikar/15/610/


Ég hreint út sagt get ekki beðið! 
Set með hérna eitt rosa flott frá þeim https://www.youtube.com/watch?v=I0fObdhfbkQ

x Unnur 

þriðjudagur, 18. mars 2014

Upphafið

Þá er komið að því! Eftir fjöldan allan af áskorunum, vangaveltum og nýjum tækifærum hef ég ákveðið að opna mitt eigið blogg þar sem ég mun skrifa um allt milli himins og jarðar. Þetta blogg er þó í raun og veru að fæðast fyrst og fremst vegna þess að ég er að fara til Bandaríkjanna í sumar en á meðan dvöl minni stendur ætla ég að reyna að vera sem duglegust að setja inn nýjar færslur af þeim verkefnum sem ég verð að vinna að. 

Til að byrja með vil ég þó segja ykkur aðeins frá sjálfri mér.

Unnur Lárusdóttir heiti ég. Fædd og uppalin í Reykjavík. Er á 17 aldursári en fæddist þann 12. nóvember árið 1997. Ég geng í Verzlunarskóla Íslands og hef afar gaman að. Er að vinna með skólanum sem hentar mér vel. Ég hef mjög gaman að öllu sem tengist fjölmiðlun (líklegast ein af ástæðunum fyrir því að ég sé að byrja með þetta blogg), einnig æfi ég fótbolta með Knattspyrnufélaginu Þrótti, Reykjavík en ég hef líka verið mikið í dansinum - hef æft í rúm 7 ár en þó með bilum og hléum og hjá mismunandi dansskólum. Ég elska að ferðast, bæði innan sem utanlands og kynnast mismunandi hefðum og menningarheimum. Ég fylgist mikið með tísku og því sem er að gerast í dag, bæði á Íslandi og úti í heimi. Ég set mér gjarnan markmið og finnst mér það hjálpa mér mikið. Einn af mínum stærstu draumum er líklegast að fá að skoða og upplifa heiminn. 

Þetta er klárlega mikil frumraun fyrir mig og algjörlega fyrir utan minn þægindaramma en það er eitthvað sem ég tek fagnandi enda finnst mér alltaf rosa gaman að prófa eitthvað nýtt. 

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í þetta skiptið. Læt hérna eitt gott fylgja með sem hefur verið frekar mikið í spilun hjá mér upp á síðkastið!




x Unnur