Ég hef rosa mikinn áhuga á hönnun og arkítektúr þannig að dunda mér svona við herbergið mitt og heimilið í heild sinni er eitthvað sem mér finnst voða spennandi. Ég hef einnig mikinn áhuga á ljósmyndun og þeir sem þekkja mig vel vita að ég tek mikið af myndum (oft í tíma og ótíma) en fyrir mér eru myndir minningar sem lifa með okkur um ókomna tíð. Því ákvað ég að leita til Hans Petersen - http://hanspetersen.is og prenta út uppáhalds myndirnar mínar af Instagram. Myndirnar sem ég lét prenta út fyrir mig urðu ansi margar en það góða er að þær voru á frábæru verði!
Útkoman varð þessi svona líka fíni Instagram-veggur sem gerir heilmikið fyrir herbergið! Ég er ótrúlega glöð með myndirnar og mæli hiklaust með Hans Petersen, góð þjónusta, tekur stuttan tíma og ódýrara en á mörgum öðrum stöðum.
Deili hérna með ykkur nokkrum myndum.
Vona að þetta sé kannski smá inspo fyrir ykkur sem eruð í einhvers konar breytinga-pælingum.
Love,
Unnur


Engin ummæli:
Skrifa ummæli