fimmtudagur, 17. apríl 2014

Tumblr inspo

Jæja þá er loksins kominn fimmtudagur og ég komin upp í bústað með familíunni. Betra gerist það ekki, vægast sagt! Allt í snjó og við vorum að enda við að borða kjúklingarétt fjölskyldunnar - það besta sem ég fæ. Nú ligg ég uppi í rúmi og hlusta á Ed Sheeran og vafra á Tumblr…þetta gerist ekki oft svo þetta er afar kærkomið tjill vil ég meina.

Ég þrái ekkert heitar en sumarið. Það er svo margt skemmtilegt og framandi sem bíður mín í sumar að ég er að missa mig. Ég hlakka til þess að njóta og upplifa eins klisjulegt og það hljómar. Þar sem prófin eru eftir og hellingur af skemmtilegu skólastússi og pælingum að þá leyfi ég mér bara að hlakka til og dreyma þar til sumarið gengur í garð. Ég vona bara að þessi snjór sem hefur fallið undanfarna daga sé á síðasti í bili…mig langar rosa mikið að fara í langa hjólatúra með sólgleraugun mín og sólina skínandi…úff þessi dagdraumar, svo næs.

Nóg um það. Hér er nokkrar inspo myndir af tumblr þetta kvöldið. Njótið með ykkar bestu og gleðilega páska.















xo, 
Unnur


mánudagur, 14. apríl 2014

What defines you...

Þar sem ég er lasarus þessa stundina (í fyrsta skiptið frá því fyrir ári síðan) að þá ligg ég bara uppi í rúmi og horfi á TED fyrirlestra, les fréttir og fletti frábæra Verzlunarskólablaðinu mínu sem ég er alltaf jafn hrifin af.

Það sem fær mig samt alltaf jafn mikið til þess að hugsa er einn ákveðinn fyrirlestur sem vinkona mín hún Lizzie hélt á vegum TED fyrir nokkru síðan. Þar talar hún um afar sjaldgefinn sjúkdóm sinn og allt sem hún hefur þurft að upplifa í kjölfar þess að vera þolandi hans. Lizzie er 25 ára og getur ekki þyngst. Hún er afar lítil og grönn og hefur aldrei náð að verða þyngri en 29 kíló. Hún sér aðeins með öðru auga en enginn þessara kvilla hefur dregið hana niður. Þrátt fyrir mikið einelti, leiðinleg ummæli á kommentakerfum og fleiri erfiðleika lætur hún ekkert stoppa sig og starfar nú sem fyrirlesari og rithöfundur.

Það sem veitir mér mest innblástur í fari Lizziear er þrautseigjan og viljinn. Viljinn til að sigra og gera betur. Það að standa með sjálfum sér og sínum markmiðum og líklegast það allra mikilvægasta…að vita hvað skilgreinir þig.

Ég mæli með því að þið sem hafið ekki hlustað á þennan fyrirlestur áður takið ykkur tíma og gerið það. Hún hefur einstaklega mikið fram að færa og ég held að við hefðum öll gott af því að vita hvað það er sem skilgreinir okkur. Það eru nefninlega alltof margir sem láta mótlæti draga sig niður í stað þess að byggja sig upp. Ef við erum með markmið okkar á hreinu að þá eru það þau ásamt áliti okkar á okkur sjálfum, það sem skilgreinir okkur, alls ekki einhver Palli úti i bæ.

Fyrirlesturinn má horfa á hérna https://www.youtube.com/watch?v=c62Aqdlzvqk

Brave starts here!

xx Unnur

mánudagur, 7. apríl 2014

Gullmolar liðinna daga

Undanfarnir dagar hafa verið verulega áhugaverðir og öðruvísi. Ég er búin að vera á fullu í hinum ýmsu verkefnum og því ekki búin að blogga neitt. Ég ætla að reyna að hafa þessa færslu stutta og laggóða og varpa hér fram nokkrum af vangaveltum mínum undanfarið sem við ættum öll að tileinka okkur. 

"The things you do for yourself are gone when you are gone, but the things you do for others remain as legacy." - Kalu Kalu

Segðu það sem þig langar að segja þegar þú vilt segja það! Ekki bíða eftir betri tíma því það er enginn betri tími en akkúrat tíminn sem þú lifir í dag.


Pössum okkur að forgangsraða rétt. Greinum á milli þess sem skiptir okkur mestu máli og því sem skiptir okkur minna máli. 


Tökum einni áskorun í einu og setjum okkur markmið. 


Væntingar eru skrítið fyrirbæri. Ef við förum fram úr okkur þá eigum við það til að gleyma stund og stað og verða þá fyrir vonbrigðum ef væntingarnar standast ekki. Væntingar eru af hinu góða en höldum okkur þó á jörðinni. 


Lærum að segja nei og verum stolt af því að geta sagt nei. Það krefst hugrekkis og þá allra helst þegar þú neitar einhverju sem þig langar verulega eða skiptir þig máli. Þó svo að það sé erfitt að þá er það samt þroskandi.


Gefum okkur tíma og stöndum með okkur sjálfum. 


Því meira sem við lærum að þekkja okkur sjálf þeim betur getum við leyft öðrum að kynnast okkur og við lært að kynnast þeim á móti. 


Mistök eru af hinu góða, við þurfum ekki að vera hrædd við þau, því án mistaka myndum við aldrei læra. 


Verum jákvæð og reynum að sjá alltaf það besta í öllu - þó svo að okkur finnst það kannski ómögulegt einhverja stundina. 


Verum óhrædd við álit annarra. Þitt álit á þér er það eina sem á að skipta þig máli. Stöndum ávalt með okkur sjálfum og gerum okkur stolt af þeirri manneskju sem við erum. 


Berum virðingu fyrir okkur sjálfum þvi ef við gerum það ekki að þá berum við ekki virðingu fyrir öðrum. 


Pössum okkur að setja ekki alla undir sama hatt. Það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum. 



Þá held ég að þetta sé gott af pælingum í dag. Þetta er allavega eitthvað sem hefur verið að hringlast í höfði mínu undanfarið. Tökum áhættur og verum óhrædd við það sem við þekkjum ekki. Ef við prófum aldrei eitthvað nýtt að þá stöndum við í stað og reynsla okkar verður engin - þægindaramminn er okkar áskorun. Þorum að fara út fyrir hann!

Mánudagskveðja, 
Unnur Lár.