mánudagur, 7. apríl 2014

Gullmolar liðinna daga

Undanfarnir dagar hafa verið verulega áhugaverðir og öðruvísi. Ég er búin að vera á fullu í hinum ýmsu verkefnum og því ekki búin að blogga neitt. Ég ætla að reyna að hafa þessa færslu stutta og laggóða og varpa hér fram nokkrum af vangaveltum mínum undanfarið sem við ættum öll að tileinka okkur. 

"The things you do for yourself are gone when you are gone, but the things you do for others remain as legacy." - Kalu Kalu

Segðu það sem þig langar að segja þegar þú vilt segja það! Ekki bíða eftir betri tíma því það er enginn betri tími en akkúrat tíminn sem þú lifir í dag.


Pössum okkur að forgangsraða rétt. Greinum á milli þess sem skiptir okkur mestu máli og því sem skiptir okkur minna máli. 


Tökum einni áskorun í einu og setjum okkur markmið. 


Væntingar eru skrítið fyrirbæri. Ef við förum fram úr okkur þá eigum við það til að gleyma stund og stað og verða þá fyrir vonbrigðum ef væntingarnar standast ekki. Væntingar eru af hinu góða en höldum okkur þó á jörðinni. 


Lærum að segja nei og verum stolt af því að geta sagt nei. Það krefst hugrekkis og þá allra helst þegar þú neitar einhverju sem þig langar verulega eða skiptir þig máli. Þó svo að það sé erfitt að þá er það samt þroskandi.


Gefum okkur tíma og stöndum með okkur sjálfum. 


Því meira sem við lærum að þekkja okkur sjálf þeim betur getum við leyft öðrum að kynnast okkur og við lært að kynnast þeim á móti. 


Mistök eru af hinu góða, við þurfum ekki að vera hrædd við þau, því án mistaka myndum við aldrei læra. 


Verum jákvæð og reynum að sjá alltaf það besta í öllu - þó svo að okkur finnst það kannski ómögulegt einhverja stundina. 


Verum óhrædd við álit annarra. Þitt álit á þér er það eina sem á að skipta þig máli. Stöndum ávalt með okkur sjálfum og gerum okkur stolt af þeirri manneskju sem við erum. 


Berum virðingu fyrir okkur sjálfum þvi ef við gerum það ekki að þá berum við ekki virðingu fyrir öðrum. 


Pössum okkur að setja ekki alla undir sama hatt. Það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum. 



Þá held ég að þetta sé gott af pælingum í dag. Þetta er allavega eitthvað sem hefur verið að hringlast í höfði mínu undanfarið. Tökum áhættur og verum óhrædd við það sem við þekkjum ekki. Ef við prófum aldrei eitthvað nýtt að þá stöndum við í stað og reynsla okkar verður engin - þægindaramminn er okkar áskorun. Þorum að fara út fyrir hann!

Mánudagskveðja, 
Unnur Lár. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli