Þar sem ég er lasarus þessa stundina (í fyrsta skiptið frá því fyrir ári síðan) að þá ligg ég bara uppi í rúmi og horfi á TED fyrirlestra, les fréttir og fletti frábæra Verzlunarskólablaðinu mínu sem ég er alltaf jafn hrifin af.
Það sem fær mig samt alltaf jafn mikið til þess að hugsa er einn ákveðinn fyrirlestur sem vinkona mín hún Lizzie hélt á vegum TED fyrir nokkru síðan. Þar talar hún um afar sjaldgefinn sjúkdóm sinn og allt sem hún hefur þurft að upplifa í kjölfar þess að vera þolandi hans. Lizzie er 25 ára og getur ekki þyngst. Hún er afar lítil og grönn og hefur aldrei náð að verða þyngri en 29 kíló. Hún sér aðeins með öðru auga en enginn þessara kvilla hefur dregið hana niður. Þrátt fyrir mikið einelti, leiðinleg ummæli á kommentakerfum og fleiri erfiðleika lætur hún ekkert stoppa sig og starfar nú sem fyrirlesari og rithöfundur.
Það sem veitir mér mest innblástur í fari Lizziear er þrautseigjan og viljinn. Viljinn til að sigra og gera betur. Það að standa með sjálfum sér og sínum markmiðum og líklegast það allra mikilvægasta…að vita hvað skilgreinir þig.
Ég mæli með því að þið sem hafið ekki hlustað á þennan fyrirlestur áður takið ykkur tíma og gerið það. Hún hefur einstaklega mikið fram að færa og ég held að við hefðum öll gott af því að vita hvað það er sem skilgreinir okkur. Það eru nefninlega alltof margir sem láta mótlæti draga sig niður í stað þess að byggja sig upp. Ef við erum með markmið okkar á hreinu að þá eru það þau ásamt áliti okkar á okkur sjálfum, það sem skilgreinir okkur, alls ekki einhver Palli úti i bæ.
Fyrirlesturinn má horfa á hérna https://www.youtube.com/watch?v=c62Aqdlzvqk
Brave starts here!
xx Unnur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli