þriðjudagur, 1. júlí 2014

The first days in the US

Það eru strax þrír dagar búnir af prógramminu hérna í Indiana, Bandaríkjunum. Enskan hefur tekið öll völd og ég á erfitt með að tala íslensku þegar ég er á Skype með fjölskyldunni. Ég veit í rauninni ekki hvar ég á að byrja að lýsa þessu öllu saman en síðustu dagar hafa verið töfrum líkastir.

Ég lenti hérna í Indiana aðfaranótt 29.júní. Fyrsti dagurinn var satt að segja frekar yfirþyrmandi en þó ótrúlega áhugaverður. Ég fékk lítinn svefn um nóttina en þegar leið á daginn þá hvarf þreytan þar sem það var svo margt skemmtilegt sem við vorum að gera saman. Allir eða flestir hérna eiga auðvelt með að kynnast svo það er góður kostur. Jafnvel þó að það eru aðeins þrír dagar búnir þá erum við öll orðin svo góðir vinir að það er strax eins og tvær vikur hafi liðið.


Fyrsti dagurinn einkenndist af kynningu á campus-inu (ég í alvörunni man ekki íslenska orðið yfir campus), einnig fórum við í gegnum dagskránna og fórum svo í svakalega flottan kvöldverð seinna um daginn (borðum kvöldmat yfirleitt frekar snemma). Þar var okkur þjónað til borðs, við horfðum á myndbönd og kynntum okkur fyrir hinum þátttakendunum í þessu prógrammi. Um kvöldið þá löbbuðum við heim í góðu veðri og fórum fljótlega að sofa enda flest okkar afar þreytt eftir annasaman dag.


Dagur tvö var virkilega áhugaverður og skemmtilegur. Við fórum í tvo fyrstu tímana okkar hérna. Annar þeirra var um Benjamin Franklin - mjög skemmtilegt, áhugavert og fræðandi. Seinni tíminn var Journalism and Media með Lindu Huges sem hefur unnið sem blaðamaður í 17 ár og það var mjög gaman að hlusta á hana tala um fagið þar sem hún hefur óstöðvandi áhuga á því sem hún er að gera. Um kvöldið fórum við svo í lestarferð um campus-ið sem var sérstakt en þó skemmtilegt. 


Þriðji dagurinn, sem er dagurinn í dag hefur so far, verið mjög skemmtilegur og ég hef lært mikið. Við fórum í tíma, Civic Education og prófessorinn okkar heitir Robert Leming. Hann flaug alla leið frá Californiu til þess að kenna okkur í þrjá daga. Tímarnir voru fræðandi og við áttum áhugaverðar samræður. Allir koma sínum skoðunum á framfæri sem er gott þar sem við lærum svo mikið af hvor öðru og einnig því hvar lönd okkar standa í dag. Um kvöldið fórum við í göngutúr og lágum í grasinu þar sem við gátum horft yfir allt campus-ið, í um klukkutíma. Ég á í rauninni bara bágt með að trúa því að þetta sé allt að gerast og ég sé að kynnast öllum þessum krökkum frá allri Evrópu og Ameríku. 


Þetta hefur allt verið svo óraunverulegt. Svo langt frá því sem ég er vön. Öðruvísi matur, menning, hefðir og allir eru að miðla sinni reynslu sem hefur mikil áhrif og við lærum öll svo mikið af. Að þessu sögðu ætla ég að deila með ykkur nokkrum skemmtilegum myndum sem hafa verið teknar undanfarna daga. 











Njótið, 
Unnur


 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli