Undanfarnar tvær vikur hafa verið ótrúlegar. Ég ferðaðist með fjölskyldunni til Danmerkur og Krítar. Þessi ferð var eitt stórt ævintýri. Við gerðum margt og ferðuðumst mikið. Það er erfitt að velja það sem stóð upp úr en ég held að það hafi klárlega verið ferðin okkar til draumaeyjunnar Santorini. Eyjan er með eindæmum falleg og ég mæli með henni fyrir þá sem vilja gera upplifa eitthvað einstakt og öðruvísi. Þessi eyja hefur upp á svo rosalega margt að bjóða.
Nú eyði ég dögunum mínum í undirbúning fyrir ráðstefnuna úti. Þegar ég kem út þarf ég að halda kynningu um mig sjálfa, aðra um Ísland og taka þátt í alls kyns verkefnum. Ég veit ekki hvort orðið spenna lýsi því ástandi sem ég er í nógu vel.
Ég ætla að deila með ykkur nokkrum myndum frá ferðalagi mínu til Santorini og myndbandi sem Jorge Loures frá Portúgal, strákur sem verður með mér úti í Indiana, gerði um daginn.
Næst þegar ég blogga þá verð ég komin til Indiana og þá mun ég bæði blogga á íslensku og ensku. Þannig að, þar til næst.
Draumur!
Hér má sjá myndbandið: http://www.youtube.com/watch?v=vuMwxG411HU
Unnur x



Engin ummæli:
Skrifa ummæli